Yrði það ekki dásamlegt...

4.200 ISK

Yrði það ekki dásamlegt... Rithöfundurinn Saga Hugadóttir kannar uppruna meintra kraftaverkalækninga á afskekktum sveitabæ. Nostalgía og notalegheit ásamt uppgjöri við dauðann og gamla drauga varða leið að uppgötvun sem hana óraði ekki fyrir. Á níunda áratugnum tekur eldri maður á afskekkta bóndabænum Freysdal, ferðamanninn Samuel Sandvík tali sem í kjölfarið losnar við næstum óbærilegan krónískan verk. Áratugum síðar hefur ekkjan Margrét Sandvík samband við rithöfundinn Sögu Hugadóttur í þeirri von að finna manninn. Margrét er úrkula vonar um að finna lækningu fyrir dóttur sína og þrýstir því mjög á Sögu að leita mannsins því hún var stödd í Freysdal hjá afa sínum og ömmu þegar lækningin átti sér stað. Saga hefur hins vegar enga trú á að afi hennar búi yfir óútskýranlegum lækningamætti enda staðfesti hann sjálfur að svo væri ekki. Hún lofar þó að kanna málið og fetar um leið inn á slóðir sem hvorki hana né aðra í Freysdal hefði órað fyrir. Sagan opnar glugga inn í heim fortíðar þar sem nostalgía og notalegheit ásamt uppgjöri við dauðann og gamla drauga varða leitina að sannleikanum. Yrði það ekki dásamlegt er fyrsta skáldsaga Önnu Lísu Björnsdóttur en hún hefur kennt innsæisaðferðir sínar bæði í Evrópu og Ameríku á vegum dr. Norbert Preetz og dr. Cecilia García Barrios. Við útgáfu bókarinnar rætist gamall draumur vinar Önnu Lísu og læriföður, dr. Edwin K. Yager heitins um sögu sem fjallaði á einstakan hátt um vitundina og bæri titilinn ,,Wouldn´t it be wonderful..."“ Íslenskt skáldverk Form: Kilja Blaðsíðufjöldi: 194 Útgáfuár: 2022